Víkin GK

Siglingatæki: Simrad NSO evo 3 plotter og dýptarmælir, RO 4000 VHF talstöð. Easy AIS tæki og Garmin GPS. Endurnýjað: Bólstrað sæti, stóll, stýri, gólfefni. Bátnum fylgir vagn sem hentar ágætlega þegar geyma á hann á landi. Ath. myndir af skipi eru ekki nýjar (jan26).

Læða SH-127

Flugfiskur. Vélin er af gerðinni Nanni z300 2012 model að sögn eiganda og er í grunnin 4.2 24v Toyota vél. Ath. ekki rétt vél skráð hjá Samgöngustofu. Bravo 2X drif. Nýlegt: Geymar, rafgeymar vaktara fyrir 12 og 24v, björgunargalli, Raymarine talstöð. 24v victron energy tengdir bluetooth. Báturinn er með sverum síðustokkum og flotkössum að aftan. Lestin er útbúinn þannig að það er steis í miðri lest og er pláss fyrir tvö 380 l kör langsum í miðjunni. Gott pláss til hliðar fyrir sérsmíðuð kör. Stór olíutankur um 400 lítrar og miðstöð.

Fanney ÞH

Eikarskip smíðað árið 1975 af Slippstöðinni hf. Skipið var í rekstri á Húsavík frá 2013 til 2019. Óskað er eftir tilboði í skipið með eða án haffæris.

Máni NS-46

Það nýlega búið að skipta um vél í skipinu, sama vél og var áður Volvo Penta Tamd vél, auk þess fylgja tvær aðrar vélar með (nýtast fyrir varahluti), ásamt ýmsu dóti (alenatorar o.fl.). Bátavagn fylgir. Bátur tekin í gegn 2017 að sögn eiganda (rafmagn, tæki, dekk, lest, mastur, vél tekin upp, létt yfirferð, kælar, o.fl., túrbína og alternator).

Gná SU-028

Afhendist með nýju haffæri. Snyrtilegur og vel útbúin færa- og netabátur. Mermaid vél. 24ra volta kerfi á öllu. Spilkerfi beint af gír. Báturinn er með stöðugleikakjöl og er allur vel einangraður að sögn eiganda.

Laula NS-18

Skipið er án haffæris og selst í því ástandi sem það er nú í og með þeim tækjum og búnaði sem til staðar er. Var síðast með haffæri um mitt ár 2025. Myndir með auglýsingu eru ekki nýjar, uppfærðar myndir á leiðinni.

Pages

Tel.no.: +354 5622551.
Email: skip@batarogbunadur.is

Subscribe to Bátar og búnaður RSS