Sólveig SU

McGregor 26X seglskúta. Vél árg. 2024, keyrð minna en 10 klst að sögn eiganda. Ganghraði:16-18 sml að sögn eiganda. Bátur í góðu standi og auðveldur að sigla. Góður seglapakki. Ný vél, sjálfstýring, stýrisbúnaður, góð kerra fylgir. Afhendist með nýju haffæri og björgunarbát. Ný lyfjakista.

Benas GK-317

Skel 80 árg 1991. Vél Yanmar 116hö. Furino dýptarmælir með stærðargreiningu keyptur í vor. Inverter 230v-30a. B tæki ComNav. Raymarine talstöð. Webasto. 4 kör, 1stk 660L, 2stk 300L 1stl 150L. Lélegur vagn fylgir, ekki til langferða.

Gunnar KG ÞH-34

Bátar og búnaður ehf. kynnir hér skipið Gunnar KG, í samvinnu við Fasteignasölu Þórshafnar slf., Sigurður Ragnar Kristinsson lögg. fasteigna og skipasala. Lýsing á skipi: Smellið á tengilinn PDF uppi til hægri á þessari síðu!

Kópur HU-118

Vél: Nanni Diesel, gerð: T4.200. Drif (2025) frá Vélasölunni. Vel tækjum búinn frá Sónar, Sailor talstöð, AIS, Raymarine C140W fjölnota plotter, Raymarine DSM300 Dýptarmælir 1KW, Raymarine ST6002 sjálfstýring, Raymarine RD418D 4 kw dig skann 18″ Radar, Útvarp með FM/LW og geislaspilara. 2x 310L PUR kar og 2x 160L, kör með loki. Hefur verið gerður út sl. þrjú strandveiðitímabil með tæpl. 10 tonn per tímabil. Vagn fylgir.

Gideon VE

Snekkkja, farþegaskip. Tvær Volvo Penta vélar, gerð: TAMD 63P, skv. Samgöngustofu. Hraðgeng. Er með þessa glæsilegu snekkju til sölu, hún er skráð 13,38m á lengd og 3,96 á breidd hún er smíðuð 1998 á spáni. Hliðarskrúfa að framan. Tvær káetur, gistipláss fyrir fjóra til sex. Salerni með sturtu, eldhúsaðstaða og setustofa. Var með farþegaleyfi fyrir tólf manns og tvo í áhöfn. Öll helstu siglingatæki eru um borð.

Kristbjörg SH-84

Dekkað skip, klár á veiðar með góð siglingatæki og astik! Með haffæri fram í sept. 2026. Iveco vél, gerð skv. Samgöngustofu: 8361SRM32. Gert síðastliðin ár að sögn eiganda: Vél yfirfarin m.a. skipt um spíssa og spíssalagnir, ný túrbína, nýr pústbarki, kælar hreinsaðir, olíulagnir endurnýjaðar á vél og frá tönkum, plasttankar tengdir, rafgeymar start og neyslu, nýlegt rafmagns útistýri, vettlingablásari tengt webasto miðstöð, stór led bar frammá og góð vinnuljós á dekki.

Sæborg ST-34

Skel 80. Vél Yanmar árg. 2020, gerð: 4JH3-DTE skv. skráningu Samgöngustofu. Ganghraði 10 (fer max í 12 mílur). Nýlegur Zf 25 gír, nýlegt mælaborð, fimm ný kör með loki frá Sæplast. Nýlega farið í viðhald á tveim rúlum, skipt um skrúfu árið 2024 að sögn eiganda. Garmin sjálfstýring, nýleg. Tvær kojur, búið að hækka stýrishús,örbylgjuofn og kælibox, olíumiðstöð og útvarp.

Gilli Jó GK-202

Norskur bátur. Vél er Yanmar ísett 2019, gerð skv. Samgöngustofu: 4LHA-STP, 140 kw, gengur að sögn eiganda 12-13 mílur og lítið keyrð. Fimm kör fylgja. Nýtt/nýlegt: Geymar, stóll, björgunargallar (2 stk), dýptarmælir. Þokkalegur vagn fylgir.

River 460XR (óskráður)

River 460 XR er norskur bátur. Framleiddur af Roto. Hann er 4,6m á lengd og 1,8 m á breidd. Báturinn hefur fengið verðlaun fyrir smekklega hönnun. Báturinn er framleiddur úr 3ja laga polýetýlíni. Hann er sterkur, stöðugur, rúmgóður og léttur. Krefst lítils viðhalds. Tekur 4 - 5 manns í sæti. Hefur verið á sjó í 3 sumur. Hefur verið lítið notaður að sögn eiganda. Mótor fór í ástandsskoðun hjá Suzuki umboðinu í maí 2025. Samkvæmt framleiðanda er uppgefinn ganghraði um 30 mílur. Hefur verið geymdur inni í skemmu á veturna. Staðsettur í Dalabyggð.

Pages

Tel.no.: +354 5622551.
Email: skip@batarogbunadur.is

Subscribe to Bátar og búnaður RSS