Til sölu einkahlutafélagið Gunnar KG ehf en helsta eign þess félags er grásleppu/strandveiðibáturinn Gunnar KG.
Knörr, lengdur um miðju og breikkaður að aftan. Vél cummins 300 hö, (skráð 187 kw hjá samgöngustofu). Helstu siglingatæki til staðar, miðstöð frá vél og kabyssa í lúkar. Í lest eru 11 stærri trillukör á gólfi. Gott grásleppuúthald.