Alexandra RE með skipaskránúmer 7492, sem er trefjaplastbátur, skemmtibátur smíðaður hjá Macgregor Yacht árið 1999.
Yamaha utanborðsvél sem er árgerð 1999, skráð 36,80 kW. Bátnum fylgir allur búnaður hvort sem er í landi eða um borð,
þ.m.t. 1 stk. Genoa segl og fokka, 1 stk aðalsegl, talstöð, ferðasalerni, 2 stk bensíntankar, Garmin fishfinder 90 dýptarmælir, Garmin GPSmap 276CX, ankeri í keðju og kaðli auk fasts búnaðar, rá og reiða og dráttarvagn. Báturinn hefur fast pláss í bryggjuhverfishöfn og það gæti mögulega fylgt til nýs eiganda. Vetrargeymsla hefur verið flugskýli á Sandskeiði, og það gæti mögulega einnig fylgt bátnum. Ath. myndir með bát eru ekki nýjar.